Síðastliðinn sólarhring fór slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu í 85 verkefni. Dælubílar fóru í fjögur verkefni, en þau voru öll minniháttar. Tvö verkefna dælubílanna tengdust matseld.
Slökkviliðið greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
Í öðru tilfellinu var dælubíll sendur þar sem kviknað hafði í ofelduðu brauði. Í hinu tilfellinu var verið að grilla í fyrsta skiptið þetta vorið og kviknaði í grillinu. Að mati slökkviliðsins kviknaði sennilega í því vegna fitu frá fyrra ári.
„Ef verið er að yfirfara grillið fyrir sumarið þá þarf að skoða allt grillið ekki bara opna það, gott er að þrífa það allt hátt og lágt fjarlægja fitu og svo þarf að skipta um slöngu á gasgrilli reglulega því þær eiga það til að verða ónýtar og leka, þess vegna þarf að skipta um þær svo ekki verði slys,“ skrifar slökkviliðið á Facebook.
Heldur hægðist á verkefnum sjúkrabílanna síðastliðinn sólarhring en við fórum í 85 verkefni þar af voru 32...
Posted by Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. on Laugardagur, 22. apríl 2023