„Um þessar mundir er víðáttumikil hæð yfir Grænlandi og yfir Skandinavíu er lægðasvæði, en þetta hefur í för með sér norðaustlægar áttir hér við land. Það er bót á máli að vindur er ekki mikill og úrkoma í minna lagi, en það er heldur svalt í veðri þó,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Í dag stefnir í norðaustan 5-13 m/s seinni partinn, hvassast norðvestantil.
Þá þykknar heldur upp norðaustanlands, en áfram verður bjart á norðvestanverðu landinu. Sunnantil ætlar lítil lægðabóla að senda skýjað veður og dálitla vætu inn á land.
Á morgun er útlit fyrir hægari vind og stöku él norðaustanlands, skúri syðra og bjart norðvestantil. Kólnandi veður.