Þorsteinn og Sigríður leiða nýjan stýrihóp

Hafþór Einarsson, Sigríður Hallgrímsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Gylfi Arnbjörnsson og Anna …
Hafþór Einarsson, Sigríður Hallgrímsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Gylfi Arnbjörnsson og Anna María Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Mennta- og barnamálaráðherra hefur skipað stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. Verkefni hópsins er að móta aðgerðir til að ná markmiðum menntastefnu stjórnvalda til 2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um eflingu verk- og starfsnáms. Þorsteinn Gunnarsson, og Sigríður Hallgrímsdóttir leiða starf hópsins.

Stefnan byggir á þeirri sýn að veitt skuli framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem öll geta lært og öll skipta máli. Tillögur hópsins munu einnig byggja á markmiðum stjórnvalda um að auka farsæld barna og ungmenna, m.a. með samþættingu kerfa, aukinni skólaþjónustu og hagræðingu, eftirfylgni og samvinnu, að því er ráðuneytið greinir frá.

Stýrihópnum er falið að móta og leggja fram tillögur að aðgerðum sem snúa að framtíðarskipulagi framhaldsskólakerfisins og mæta samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum framhaldsskólanna, segir á vef ráðuneytisins. 

„Skólarnir standa frammi fyrir breytingum þar sem gera má ráð fyrir að nemendum í bóknámi muni fækka á komandi árum, bæði vegna fámennari árganga og vegna aukins hlutar starfs- og verknáms. Þetta kallar á breytingar á skipulagi, nýtingu húsnæðis og tilfærslu fjármuna innan kerfisins sem nýtast við að efla stuðning við nemendur og auka skólaþróun. Þá mun stýrihópurinn meta rekstrarforsendur framhaldsskólanna með hliðsjón af fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2024–2028 og gera tillögur að úrbótum þar sem við á. Við mótun aðgerða mun hópurinn sérstaklega hafa í huga að tryggja og efla gæði náms sem búi nemendur undir samfélagslegar áskoranir í síbreytilegum heimi auk þess að skólarnir hafi getu til að þjónusta fjölbreyttan hóp nemenda,“ segir í tilkynningunni. 

Hópinn skipa Þorsteinn Gunnarsson, fyrrv. rektor Háskólans á Akureyri, Sigríður Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri og fyrrv. aðstoðarmaður menntamálaráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, Anna María Gunnarsdóttir og Hafþór Einarsson, sérfræðingar í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Þorsteinn og Sigríður leiða starf stýrihópsins en hópurinn mun eiga náið samráð við skólastjórnendur, kennara, nemendur og aðra hagaðila við mótun aðgerða. Tillögum verður skilað í áföngum til mennta- og barnamálaráðherra í maí, ágúst og október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert