Alls sótti 21 um stöðu fjölmiðlafulltrúa hjá utanríkisráðuneytinu en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Starfið var auglýst þann 22. mars og rann umsóknarfrestur út 12. apríl síðastliðinn.
Meðal umsækjenda má meðal annars sjá stjórnmálafræðinga, fjölmiðlafræðinga, ferðaráðgjafa, blaðamenn og verkefnastjóra.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins en nöfn umsækjenda má sjá hér að neðan.
- Aron Guðmundsson, stjórnmálafræðingur
- Auðunn Arnórsson, verkefnastjóri
- Auður Albertsdóttir, ráðgjafi
- Árdís Hermannsdóttir, samskiptastjóri
- Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður
- Elva Björk Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi
- Erla Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
- Eva Dögg Atladóttir, samskiptafulltrúi
- Fjalar Sigurðarson, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins
- Davíð Ernir Kolbeins, almannatengill
- Georg Gylfason, sérfræðingur
- Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálafræðingur
- Heba Líf Jónsdóttir, ferðaráðgjafi
- Íris Andradóttir, blaðakona
- Kolbrún Pálsdóttir, kynningarstjóri
- Lovísa Arnardóttir, fv. fréttastjóri
- Óli Valur Pétursson, fjölmiðla- og boðskiptafræðingur
- Sunna Kristín Hilmarsdóttir, blaðamaður
- Þorfinnur Ómarsson, fjölmiðlafulltrúi
- Ægir Þór Eysteinsson, sérfræðingur.