Birgir hitti forseta Úkraínuþings

Birgir Ármannsson og Rúslan Stefantjuk forseti Úkraínuþings ræða saman á …
Birgir Ármannsson og Rúslan Stefantjuk forseti Úkraínuþings ræða saman á ráðstefnu evrópskra þingforseta í Prag. Ljósmynd/Alþingi

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, hitti Ruslan Stefantjuk, forseta Úkraínuþings, á ráðstefnu evrópskra þingforseta í Prag en ráðstefnan hófst í gær. Forsetum þjóðþinga aðildar- og umsóknarríkja ESB er boðið til þingsins auk forseta þjóðþinga ríkja í EFTA. Þetta kemur fram á vef Alþingis.

Birgir fer einnig á sérstakan fund norrænna þingforseta, sem haldinn er í tengslum við ráðstefnuna. Hann mun einnig eiga tvíhliða fund með þingforsetum Georgíu og Möltu. Birgir átti sömuleiðis stuttan fund með Stefantjúk, forseta Úkraínuþings, en þar ítrekaði Birgir stuðning Íslands við Úkraínu.

Ráðstefnan er í boði forseta efri og neðri deilda þjóðþings Tékklands. Áhrif innrásar Rússa í Úkraínu ber hátt á dagskrá fundar, en einnig verður rætt um orkuöryggi, fjölþáttaógnir og raskanir á aðfangakeðjum. Ráðstefnunni lýkur í dag.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, heilsar forsetum beggja deilda tékkneska þingsins, …
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, heilsar forsetum beggja deilda tékkneska þingsins, t.v. er Milosj Vystrtjil, forseti öldungadeildar, og í miðjunni Marketa Pekarova Adamova, forseti fulltrúadeildar/neðri deildar. Ljósmynd/Tékkneska þingið
Þátttakendur á ráðstefnu evrópskra þingforseta í Prag.
Þátttakendur á ráðstefnu evrópskra þingforseta í Prag. Ljósmynd/Tékkneska þingið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert