Dr. Rúnar Leifsson hefur verið skipaður tímabundið í embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands, til eins árs. Hann tekur við af Kristínu Huld Sigurðardóttur, núverandi forstöðumanni, þann 1. maí næstkomandi þegar hún lætur af störfum.
Rúnar er með doktorspróf í fornleifafræði frá Háskóla Íslands og hefur starfað við opinbera stjórnsýslu undanfarin ár, bæði hjá Minjastofnun Íslands og í Stjórnarráðinu.
Honum hefur verið veitt tímabundið leyfi frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu en þar starfaði hann sem sérfræðingur á skrifstofu menningar- og fjölmiðla.