Tilnefningar til Maístjörnunnar

Tilkynnt var fyrir stundu í Gunnarshúsi um tilnefningar til Maístjörnunnar, ljóðabókaverðlauna Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Rithöfundasambands Íslands, en verðlaunin verða veitt í 7. sinn í 24. maí.

Tilnefndar eru bækurnar: Skurn eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur sem Una útgáfuhús gefur út; Sjófuglinn eftir Egil Ólafsson sem Bjartur gefur út; Urta eftir Gerði Kristnýju sem Mál og menning gefur út; Plómur eftir Sunnu Dís Másdóttur sem Mál og menning gefur út; Máltaka á stríðstímum eftir Natöshu S. sem Una útgáfuhús gefur út og Allt sem rennur eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur sem Benedikt gefur út.

Hinar tilnefndu bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar frá og með deginum í dag. Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2022, alls 93, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Arnór Ingi Hjartarson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Emma Björk Hjálmarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafnsins. 

Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert