Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

Tveir menn voru handteknir síðdegis í dag vegna andláts manneskju á heimili á Selfossi. Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. 

RÚV greindi fyrst frá. 

Lögreglan rannsakar nú hvort andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. 

Grímur segist ekki geta tjáð sig frekar um málið og að rannsókn sé á algjöru frumstigi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert