Finnbjörn sjálfkjörinn forseti ASÍ

Kristján Þórður Snæbjarnarson, fráfarandi forseti ASÍ, og Finnbjörn A. Hermannsson, …
Kristján Þórður Snæbjarnarson, fráfarandi forseti ASÍ, og Finnbjörn A. Hermannsson, nýkjörinn forseti ASÍ. mbl.is/Árni Sæberg

Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust.

Finnbjörn hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni. Hann lét nýlega af störfum sem formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur, þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár, að því er segir á vef ASÍ. 

Þá voru kjörnir varaforsetar.

Í embætti fyrsta varaforseta var kjörinn Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Í embætti annars varaforseta var kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs starfsgreinafélags, og í embætti þriðja varaforseta var kjörinn Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Engin mótframboð bárust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert