UNICEF og Controlant hafa undirritað samning um samstarf til þriggja ára til styrktar börnum með áherslu á bólusetningar sem bjarga lífum. Controlant mun næstu þrjú árin veita Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna árlegan fjárstyrk, sem rennur til brýnna verkefna sem hafa bein áhrif á líf barna vítt og breitt um heiminn.
Styrkurinn mun renna í kjarnastarfsemi UNICEF. Þannig er hægt að tryggja að fjármunirnir nýtist sem best í þágu barna, bæði til þeirra sem eru í neyð og til þeirra verkefna sem stuðla að velferð barna. Með samstarfinu vonast Conroland og UNICEF til þess að hafa raunveruleg jákvæð áhrif á líf barna og stuðla að heilbrigðri barnæsku. Er það grundvöllur þess að börn hafi tækifæri til þess að læra, þroskast og dafna.
Bólusetningarherferðir UNICEF og samstarfsaðila hafa leitt af sér gífurlegan árangur við að fyrirbyggja sjúkdóma og dauðsföll, þar á meðal lífshættulega sjúkdóma og smitsjúkdóma á borð við mænusótt og mislinga. Því fleiri börn sem eru bólusett gegn tilteknum sjúkdómum, því öruggari eru allir íbúar samfélagsins.
Þar sem UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum fellur samstarfið vel að starfsemi Contolant sem er leiðandi á heimsvísu í rauntíma vöktunarlausnum aðfangakeðju lyfja, þar á meðal bóluefna. En með lausnum sínum stuðlar Controlant að öruggum, traustum, rekjanlegum og sjálfbærum lyfjaflutningum.
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir samstarfið mikið fagnaðarefni. Fyrirtækin deili hugsjón um jöfn rétttindi allra barna og mikilvægi bólusetninga. Hún undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að sofna ekki á vaktinni í kjölfar frétta síðustu daga um ójöfnuð í bólusetningum barna. Þá vonast hún til þess að samstörf fyrirtækjanna geti orðið fleiri enda möguleg samstarfstækifæri gríðarmörg.
Gísli Herjólfsson, forstjóri og einn af stofnendum Controlant segir að í samstarfinu verði lögð áhersla á bólusetningar barna bæði með vitundarvakningu um mikilvægi bólusetninga sem ein af áhrifaríkustu leiðum til þess að efla heilsu barna og sem forvörn gegn sjúkdómum og dauðsföllum af völdum þeirra.
„Við vitum að bólusetningar bjarga mannslífum og við fögnum því að hefja samstarf með UNICEF með það að leiðarljósi að vernda líf og heilsu barna. Það er okkur heiður að geta lagt alþjóðlegu hjálparstarfi í þágu barna lið með fjármunum, en einnig með þeirri reynslu, þekkingu og tækni sem Controlant og fólkið sem hér starfar býr yfir. Bólusetningar er ein áhrifaríkasta og hagkvæmasta leið til þess að vernda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma, en til þess að bóluefni virki verður það að geymast við rétt hitastig, frá framleiðslu þangað til það kemst á leiðarenda. Við erum stolt að geta lagt UNICEF og bólusetningarátaki þess lið og stuðla þannig að heilbrigði barna um heim allan.“