Hin látna var á þrítugsaldri

Rannsókn lögreglu á andláti í heimahúsi á Selfossi um miðjan dag í dag er í fullum gangi og hefur lögreglan á Selfossi fengið liðsinni tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við hana. Hin látna var kona á þrítugsaldri. 

Í tilkynningu frá lögreglu nú seint í kvöld segir að tveir karlmenn á þrítugsaldri hafi verið handteknir á vettvangi og séu þeir í haldi lögreglu. Hyggst lögregla ekki greina frekar frá framgangi rannsóknarinnar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert