Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á að tveir karlmenn sæti gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á andláti konu á þrítugsaldri. Konan fannst látin í heimahúsi á Selfossi síðdegis í gær og voru tveir karlmenn handteknir á vettvangi.
Mennirnir eru báðir á þrítugsaldri. Grunur er um að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti. Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu og getur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar um málið.