Norðanvindar tryggja að kalt verður á landinu í dag og næstu daga. Bjart er þó víða um land, en þykknar upp sunanlands síðdegis með stöku skúrum eða él suðaustanlands. Norðlæg átt, 3-10 m/sek en 10-15 m/sek austast.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings.
Veður verður svipað á morgun en þá örlítið hvassara 8-13 m/sek og skýjað með stöku éljum norðantil eftir hádegi. Léttir til um sunnanvert landið. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast suðvestanlands, en frost víða 0 til 5 stig að næturlagi.
Veðurhorfur næstu daga:
Á sunnudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast með norður- og norðausturströndinni. Bjartviðri framan af degi, en þykknar upp með stöku él á norðanverðu landinu seinni partinn. Vægt frost norðantil, en hiti annars 1 til 7 stig.
Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Lítilsháttar él og vægt frost á Norður- og Austurlandi, en annars bjart með köflum og hiti að 5 stigum.
Á þriðjudag og miðvikudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en austanstrekkingur og stöku skúr við suðurströndina. Hiti 0 til 7 stig, svalast norðaustanlands.
Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu og hlýnandi veðri, en þurrt að kalla norðaustanlands.
Á föstudag: Líklega suðlæg átt og skúrir á víð og dreif. Hlýnandi veður.