Báturinn nánast alelda í Sandgerðishöfn

Ljósmynd/Reynir Sveinsson

Bátur sem kviknaði fyrst í rétt fyrir miðnætti í gær í Sand­gerðis­höfn, er nú orðin alelda að sögn Ómars Ingimars­sonar, deild­ar­stjóra hjá Bruna­vörn­um Suður­nesja. Allt tiltækt slökkvilið er að störfum.

Slökkvilið sinnti útkallinu í gærkvöldi er eld­ur­ kviknaði út­frá raf­magn­stöflu í véla­sal. Þá kviknaði ekki mikill eldur en töluvert var um reyk. 

Þá var slökkvilið aftur kallað út um sjö í morgun vegna reyks og var allt eðlilegt er slökkviliðið fór þaðan, en þá var báturinn allur yfirfarinn með hitamyndavélum. 

Ljósmynd/Reynir Sveinsson

„Hann bara fór að skíðloga“

Slökkviliðið var nýkomið inn er aftur fór að rjúka úr bátnum um níuleytið. „Hann bara fór að skíðloga,“ segir Ómar.

Spurður hvort að aftur hafi kviknað út frá rafmagnstöflunni segir Ómar að allt hafi bent til þess í upphafi, „en hvað hefur gerst meira vitum við ekki. Það er verið að vinna í þessu“.

Ljósmynd/Reynir Sveinsson

Búið er að tryggja að ekki kvikni í öðrum bátum í höfninni og að sögn Ómars eru aðstæður ágætar til slökkvistarfs, en líkt og áður sagði er allt tiltækt slökkvilið á staðnum. 

Hann segir að bæjarbúar þurfi ekki að óttast að reyk leggist yfir heimili þeirra þar sem reykurinn blæs á haf út. 

Hægt er að fylgjast með slökkvistarfi í beinni á Facebook-síðu Víkurfrétta.

Ljósmynd/Reynir Sveinsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert