Í dag verður norðan strekkingur norðanlands, en stinningsgola á Suðurlandi. Yfirleitt verður léttskýjað, en er líður á daginn þykknar upp norðantil og víða stöku él undir kvöld og fram á nótt.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að á morgun verði áframhaldandi norðlæg átt með éljum um norðanvert landið, en skýjað með köflum syðra.
Hiti frá frostmarki norðaustanlands upp í 9 stig á Suður- og Vesturlandi, en frost víðast hvar 0 til 5 stig að næturlagi.