Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að nafn konunnar sem lést í heimahúsi á Selfossi á fimmtudag verði ekki gefið upp að svo stöddu.
Konan var á þrítugsaldri. Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram til föstudagsins 5. maí vegna málsins. Samkvæmt heimildum mbl.is eru mennirnir hálfbræður.
„Rannsókn lögreglu er umfangsmikil en miðar vel áfram og er rannsóknarvinna í fullum gangi,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Lögreglan hefur notið liðsinnis frá lögreglunni á Suðurnesjum, sem og tækni- og tölvurannsóknardeildum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsóknina.
Þá segir að rannsókn lögreglu sé á viðkvæmu stigi og því verða ekki gefnar út frekari upplýsingar um framgang hennar að sinni.