Mikill eldur logar nú við Hafnarfjarðarhöfn. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er komið á staðinn en ekki fást frekari upplýsingar að svo stöddu.
Samkvæmt blaðamanni mbl.is á staðnum er einnig fjöldi lögreglubíla og sjúkrabíla á staðnum. Húsið sem nú brennur er Drafnarslippur, yfirgefin slippstöð sem hefur ekki verið notuð í nokkurn tíma.
Mikinn reyk leggur frá svæðinu og sést hann víða.