Unnið að rannsókn andlátsins alla helgina

Selfoss.
Selfoss. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

„Við erum búin að vinna alla helgina í þessu,“ segir Rún­ar Stein­gríms­son, lög­reglu­full­trúi af Suður­landi, í samtali við mbl.is um stöðuna á rannsókn lögreglu á and­láti í heima­húsi á Sel­fossi á fimmtudag. 

Á laugardag féllst dóm­ari við Héraðsdóm Suður­lands á kröfu Lög­reglu­stjór­ans á Suður­landi um gæslu­v­arðhald yfir þeim tveim­ur karl­mönn­um vegna málsins. 

Rúnar segir að önnur lögregluembætti hafi aðstoðað lögreglu á Suðurlandi við rannsóknina, en að öðru leyti getur hann ekki tjáð sig um málsatvik. 

Samkvæmt heimildum mbl.is eru mennirnir hálfbræður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert