Lýsa eftir ungmennum vegna brunans

Frá brunanum í gær.
Frá brunanum í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum ungmennum í tengslum við rannsókn hennar á bruna í Drafnarslippnum í Hafnarfirði í gærkvöldi.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að ungmennin hafi verið á ferli við slippinn um kl. 17 í gær. Eru þau beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

„Eitt þeirra er talið vera með sítt, rautt hár og annað var á hjóli, en frekari vitneskja um þau liggur ekki fyrir,“ segir í tilkynningunni.

Upplýsingum um ungmennin, ef einhver býr yfir þeim, má enn fremur koma á framfæri í tölvupósti á netfangið norma.dogg@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert