Minnist systur sinnar sem lést á Selfossi

Selfoss.
Selfoss. mbl.is/Sigurður Bogi

Konan sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi í síðustu viku hét Sofia Sarmite Kolesnikova og var á 29. aldursári.

Valda Nicola, eldri systir Kolesnikovu, minnist hennar á Facebook þar sem hún segir að „ósættanleg tilfinning“ sitji eftir í hjarta fjölskyldunnar vegna andlátsins. Hún segir systur sína hafa lifað afar heilbrigðum lífstíl og treystir á að lögreglan komist til botns í því sem gerðist.

Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til næstkomandi föstudags vegna málsins.  

Í samtali við DV segir Valda Nicola það fjarri sannleikanum að systir hennar hafi verið fíkill, eins og einhverjir hafi haldið fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert