Staðfesti gæsluvarðhald yfir mönnunum á Selfossi

Landsréttur
Landsréttur mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir tveimur karlmönnum sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald síðastliðinn laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar. 

„Vegna rannsóknar lögreglunnar á Suðurlandi á andláti ungrar konu frá því í síðustu viku voru tveir karlmenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald síðastliðinn laugardag. Þeir kærðu báðir úrskurð Héraðsdóms Suðurlands til Landsréttar. Landsréttur úrskurðaði nú fyrir stundu í málum beggja, sem staðfesti áður uppkveðna úrskurði dómara við Héraðsdóm Suðurlands um að þeir skyldu sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 5. maí næstkomandi,“ segir í tilkynningu á vef lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert