Anna Hildur Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður SÁÁ á fundi aðalstjórnar samtakanna að loknum aðalfundi sem haldinn var í fyrradag. Þráinn Farestveit var endurkjörinn varaformaður og Gróa Ásgeirsdóttir ritari.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÁÁ.
Þar segir jafnframt, að á aðalfundinum hafi komið fram að rekstrartekjur SÁÁ hafi numið rúmum tveimur milljörðum króna 2022 og rekstrarafkoman hafi verið neikvæð um 184 milljónir króna.
Sjálfsaflatekjur SÁÁ námu 570 milljónum króna, seld þjónusta 118 milljónum og framlag á fjárlögum til sjúkrareksturs var 1.330 milljónir króna. Á árinu 2022 nutu 3.500 einstaklingar þjónustu SÁÁ og voru þjónustusnertingar 28 þúsund. Með þjónustusnertingu er átt við hvert skráð tilfelli þar sem viðkomandi er sinnt með einum eða öðrum hætti, að því er segir í tilkynningunni.
Þá segir að viðamiklar breytingar á samþykktum SÁÁ hafi verið samþykktar á aðalfundinum og hafa þær verið birtar á vefsíðu samtakanna saa.is.