Þingflokkur og sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar leggja áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur skapi öryggi fyrir innanlands- og millilandaflug, mæti þörfum sjúkraflugs og að brúin á milli landsbyggðar og höfuðborgar verði áfram í Vatnsmýrinni, þar til annar jafngóður eða betri kostur finnst.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu Framsóknar vegna flugvallarins.
Tilkynnt var í síðustu viku að innviðaráðuneytið og Reykjavíkurborg hefðu komist að samkomulagi um að hefja jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning uppbyggingar í Nýja Skerjafirði. Hefur málið verið til umfjöllunar síðustu daga.
Í yfirlýsingu flokksins segir að þingflokkur og sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar sátu kynningarfund varðandi niðurstöður skýrslunnar.
„Hópurinn ítrekar afstöðu sína um að ekki muni rísa byggð í Vatnsmýrinni sem mun hafa áhrif á flug- og rekstraröryggi flugvallarins. Þannig er tryggt að samkomulag ríkis og borgar frá 2019 um að tryggja flug- og rekstraröryggi á Reykjavíkurflugvelli haldi næstu 20-25 árin,“ segir í yfirlýsingunni.
Því beinir hópurinn til borgarinnar að vinna eftir þeim ábendingum sem koma fram í niðurstöðu skýrslu starfshóps um áhrif nýrrar byggðar í Skerjafirði á flug- og rekstraröryggi.