Gjörbreytt ásýnd gamla kínverska sendiráðsins

Stórhýsið Víðimelur 29 hefur verið tekið í gegn og kallast …
Stórhýsið Víðimelur 29 hefur verið tekið í gegn og kallast á við Víðimel 27. Einar Sveinsson teiknaði húsin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikil breyting hefur orðið á ásýnd stórhýsisins að Víðimel 29 undanfarin misseri. Tæp þrjú ár eru nú síðan endurbætur hófust á húsinu og þær hafa sannarlega skilað sínu. Eitt fallegasta húsið í Vesturbænum er smám saman að taka á sig rétta mynd.

Húsið hafði staðið autt um hríð eftir að kínverska sendiráðið var flutt þaðan árið 2012 og viðhaldi var ekki sinnt.

Eigandinn hyggst sjálfur búa á efstu hæðum hússins.
Eigandinn hyggst sjálfur búa á efstu hæðum hússins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Því var það mörgum fagnaðarefni þegar í ljós kom að Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu hafði eignast húsið og boðaði gagngerar endurbætur haustið 2020.

„Þetta er myndarlegt hús og ég held að það verði mjög skemmtilegt þegar endurbótum er lokið,“ sagði Friðbert í samtali við Morgunblaðið á þeim tíma. Friðbert sagði í gær að hann byggist við að framkvæmdum við Víðimel 29 lyki í haust. Hann hyggst sjálfur búa á efstu hæðum hússins.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert