Átta mínútur yfir átta í morgun varð jarðskjálfti af stærð 3,4 rétt úti fyrir Reykjanestá.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands kemur fram að klukkan hálf sjö í morgun hafi hafist skjálftahrina á svæðinu og hafi um 20 skjálftar mælst síðan þá.
Veðurstofunni hafa ekki borist tilkynningar um að skjálftans hafi orðið vart.