Maðurinn sem lést í Hafnarfirði þann 20. apríl hét Bartlomiej Kamil Bielenda. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju í dag.
Var hann 27 ára og lét eftir sig eina dóttur tveggja ára að aldri.
Kristófer Gajowski er fulltrúi fjölskyldunnar og mun hann meðal annars ávarpa söfnuðinn í Fossvogskirkju í dag.
Fjögur voru handtekin í tengslum við rannsókn málsins og sæta nú þrír enn gæsluvarðhaldi.