Safna fyrir dóttur mannsins sem lést í Hafnarfirði

Bartlomiej Kamil Bielenda
Bartlomiej Kamil Bielenda mbl.is/Arnþór Birkisson

Aðstandendur Bartlomiej Kamil Bielenda hafa hrundið af stað söfnun til styrktar dóttur hans. Bartlomiej lést hinn 20. apríl síðastliðinn í Hafnarfirði og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn málsins. 

Lét hann eftir sig tveggja ára dóttur. Kristófer Gajowski, talsmaður aðstandenda Bartlomiej, segir reikninginn hafa verið stofnaðan með leyfi frá móður hins látna. 

Þau sem vilja aðstoða hana fjárhagslega geta lagt inn á eftirfarandi reikning: 0331-18-001396, kennitala: 211020-2530.

Bielenda var jarðsunginn í Fossvogskirkju í dag og vildi Kristófer koma á framfæri þakklæti fyrir stuðning og hjálp sem fengist hefði úr samfélaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert