Skjálftarnir sem riðu yfir í Mýrdalsjökli á tíunda tímanum í morgun reyndust stærri en bráðabirgðaniðurstöður gáfu til kynna. Eftir frekari skoðun telur Veðurstofan nú að þrír stærstu skjálfarnir hafi verið 4,8, 4,7 og 4,5 að stærð, en áður hafði verið talið að þeir væru 4,5, 4,3 og 4,2 að stærð að stærð.
Skjálfarnir fundust meðal annars í Þórsmörk og í byggð sunnan Mýrdalsjökuls.
Þá var fluglitakóða fyrir Kötlu færður yfir á gult, en það er gert þegar gosstöð sýnir merki umfram það sem er kallað bakgrunnsvirkni.
„Eins og er sjáum við hvorki merki um að hlaup sé farið af stað né merki um eldvirkni,” sagði Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, við mbl.is fyrr í dag.