Alls tóku stjórnvöld 769 herbergi á leigu á seinasta ári í tengslum við búsetu umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Um var að ræða bæði hótelherbergi og herbergi í öðru húsnæði.
Flest eru herbergin í Reykjavík eða 315, í Reykjanesbæ voru leigð 243 herbergi, 144 í Hafnarfirði, 52 í Suðurnesjabæ og 15 í Vestmannaeyjum. Á yfirstandandi ári hafa verið opnuð úrræði í tveimur sveitarfélögum til viðbótar, þ.e.a.s. á Laugarvatni í Bláskógabyggð og í Grindavík.
Þessar upplýsingar koma fram í svari félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni alþingismanni um búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Ásmundur spurði einnig um kostnað ríkisins vegna þessara úrræða. Í svarinu kemur fram að heildarkostnaður á seinasta ári var 647 milljónir króna vegna leigu á búsetuúrræðum fyrir umsækjendurna, þar með talinn er kostnaður vegna öryggiseftirlits, umsjónar húsnæðis og kaupa og viðhalds á heimilistækjum og húsgögnum.
Einnig spurði hann hver hefði verið meðalfjöldi fermetra á mann í þessum búsetuúrræðum mánuð hvern á seinasta ári. Fram kemur að meðalfermetrafjöldi fyrir hvern einstakling hefur verið breytilegur eftir mánuðum eða allt frá 12,9 fm á fyrstu mánuðum ársins til rúmlega 16 fm yfir sumarmánuðina. Í svarinu segir að í þessum tölum séu sameiginleg rými sem og rými fyrir öryggisverði og starfsmenn Vinnumálastofnunar.