Rúmlega hundrað þátttakendur tóku þátt í sjóbjörgunaræfingunni Faxa 23 þar sem fjöldabjörgun farþega frá hvalaskoðunarskipi var æfð úti fyrir Reykjavík í morgun.
Viðbragðsaðilar og hvalaskoðunarfyrirtækið Elding stóðu að æfingunni, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Á æfingunni var líkt eftir eldsvoða um borð í hvalaskoðunarskipinu Eldey. Eftir að skipstjóri Eldeyjar lýsti yfir neyðarástandi um borð flutti þyrla Gæslunnar slökkviliðsmenn frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um borð í skipið. Áhöfnin á varðskipinu Þór var kölluð út sem og sjóbjörgunarsveitir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Þeir mest slösuðu voru fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur en björgunarsveitir fluttu aðra farþega hvalaskoðunarskipsins um borð í varðskipið Þór.
„Á æfingunni gafst einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir og samskipti viðbragðsaðila og útgerðar vegna neyðartilviks á borð við það sem æfingin tók til,” segir í tilkynningunni.
Að æfingunni komu rúmlega 100 manns, þ.m.t. leikarar, áhöfnin hvalaskoðunarskipsins og viðbragðsaðilar.