Maurizio Tani, ítalskur lýðveldissinni sem búið hefur á Íslandi frá árinu 2001, boðar til mótmæla gegn bresku krúnunni fyrir utan breska sendiráðið klukkan 18.45 í dag.
Maurizio segist gera þetta sökum þess að konungsveldi á borð við það breska sé arfleið þess tíma þegar vald gekk í erfðir. Því sé það hans borgaralega skylda að mótmæla konungdæminu og hvetja Breta um leið til að taka upp lýðveldisstjórnarfar.
„Ég var á leið til London til að mótmæla við Trafalgar-torg en svo þurfti ég að vinna um helgina og komst ekki,“ segir Maurizio.
Hann segir að hann vilji með þessu sýna samstöðu með breskum lýðveldissinnum. „Eru ekki allir lýðveldissinnar á Íslandi? Þetta snýst um að fólk líti á sig sem borgara sem geti haft áhrif en að ekki séu einhverjir útvaldir sem hafi eitthvað vald vegna hefðar,“ segir Maurizio.
Spurður hvers vegna þetta sé hans hjartans mál þar sem þetta snýst um stjórnarfar í Bretlandi þá segir Maurizio að lýðveldishreyfingin í Bretlandi hafi vakið athygli hans. „Þetta snýst líka um að vera borgari og taka þátt í stjórnmálalegri umræðu. Ég held að fólk sé í of miklum mæli bara að horfa á sjónvarpið eða eitthvað í þeim dúr og gefi sig ekki að stjórnmálum til að ræða hvað sé best fyrir land og þjóð,“ segir Maurizio.
Maurizio er mikið í mun að sem flestir mæti við sendiráðið á Laufásvegi og sýni lýðræðinu samstöðu. „Það verður ítalskt súkkulaði í boði fyrir þá sem mæta. Ég er með þrjátíu stykki,“ segir Maurizio kíminn.