Brotist inn hjá Samstöðinni og skemmdarverk framin

Gunnar Smári Egilsson, ábyrgðarmaður frétta Samstöðvarinnar.
Gunnar Smári Egilsson, ábyrgðarmaður frétta Samstöðvarinnar. Samsett mynd

Brotist var inn í starfstöð fjölmiðilsins Samstöðvarinnar, sem er til húsa í Bolholti í Reykjavík, í nótt. Nánast öllum búnaði var rænt og voru gerð skemmdarverk á ýmsum nauðsynlegum búnaði.

Gunnar Smári Egilsson, ábyrgðarmaður frétta Samstöðvarinnar, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Gunnar Smári segir tjónið hlaupa á nokkrum milljónum en að hans sögn verður erfitt að bæta það tjón sem hefur orðið. Hann segir að myndavélum, linsum og hljóðmixerum hafi verið rænt en að sumir smámunir standi enn eftir.

Tveggja til þriggja milljóna tjón

„Fólk kom hérna í morgun og ætlaði að senda út fund en þá kom það bara að þessu svona. Síðan voru klipptir í sundur kaplar og annað eyðilagt. Það er ljóst að tapið er töluvert meira hjá okkur en það verðmæti sem þeir fengu sem gengu þarna út.“

Hann segir það sárt að sjá eftir búnaði sem hafi tekið mörg ár að safna upp og bætir við að Samstöðin sé tryggð en að tryggingin muni aldrei bæta allt tjónið.

„Það er eitthvað af eldra og notuðu dóti og síðan láta tryggingarfélögin þann sem verður fyrir tapinu bera eitthvað sjálfur. Þetta er svona tvær til þrjár milljónir í tapi.“

Hann segir þau sem koma að rekstri Samstöðvarinnar vera að melta þetta áfall og að þau muni funda seinna í dag til að ákveða næstu skref.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert