Hlaupari slasaðist í The Puffin Run

Tíu félagar í björgunarfélaginu gengu á slysstað með sérstakan búnað …
Tíu félagar í björgunarfélaginu gengu á slysstað með sérstakan búnað og börur á hjóli. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út í dag vegna hlaupara sem slasaðist í utanvegahlaupinu The Puffin Run.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Ljósmynd/Landsbjörg

Virðist hafa hlotið höfuðmeiðsl

„Hlauparinn virðist hafa dottið á hlaupum og hlotið höfuðmeiðsl sem gerðu það að verkum að sækja þurfti viðkomandi þar sem hann var,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að slysstaður hafi verið töluvert frá akvegi og því hafi sjúkraflutningamenn óskað eftir aðstoð björgunarsveitar til að koma viðkomandi af slysstað og í sjúkrabíl.

Ljósmynd/Landsbjörg

Gengu á slysstað

Tíu félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja gengu á slysstað með sérstakan búnað og börur á hjóli. Slysstaður var rétt austan svokallaðs Flakkara, upp af innsiglingunni til Vestmannaeyja.

Ekki eru upplýsingar um líðan hlauparans en segir í tilkynningunni að vel hafi gengið að koma honum á börur og þangað sem sjúkrabíllinn beið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert