Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling með hníf í Kópavogi.
Hann var ógnandi og hafði í hótunum við gangandi vegfaranda. Hann var handtekinn og gistir fangageymslur þar til unnt er að taka af honum skýrslu. Hnífurinn var sömuleiðis haldlagður.
Óskað var aðstoðar vegna ofurölvi einstaklings á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Við afskipti lögreglu og sjúkraflutningamanna varð hann æstur og ósamvinnuþýður og beit hann jafnframt lögreglumann. Einstaklingurinn var vistaður fangageymslu þar til hægt er að ræða við hann, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í nótt.
Tilkynnt var um hugsanlega fíkniefnasölu við fjölbýlishús í Vesturbænum í Reykjavík. Sá grunaði var farinn þegar lögreglu bar að garði.
Þá var ölvuðum og óvelkomnum einstaklingi vísað úr stigagangi fjölbýlishúss í hverfi 105 í Reykjavík. Annar einstaklingur svaf ölvunarsvefni utandyra í sama hverfi. Hann var vakinn og gekk hann sína leið.
Tilkynnt var um einstakling sem féll af rafskútu og hlaut áverka í andliti. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Óskað var aðstoðar vegna einstaklings sem féll af hestbaki í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi. Hann var fluttur á slysadeild til skoðunar.
Einn var handtekinn í Grafarvogi grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu þangað til hægt er að taka af honum skýrslu.
Tilkynnt var um árekstur og afstungu í Árbænum. Vitni gat bent á þann sem olli tjóninu og er hann grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.
Einnig barst tilkynning um umferðaróhapp í Mosfellsbæ. Báðar bifreiðarnar voru óökufærar og voru þær dregnar af vettvangi með kranabifreið. Engin slys urðu á fólki.