Ferð bandaríska hæstaréttardómarans Neil Gorsuch til Íslands árið 2021 er talin siðferðislega vafasöm þar sem lagadeild George Mason-háskóla í ríkinu Virginíu greiddi alfarið fyrir hana. Ofan á það greiddi skólinn einnig fyrir flug og gistingu fyrir vini dómarans.
Frá þessu greinir The New York Times.
Gorsuch er úr Repúblikanaflokknum og var skipaður í sæti hæstaréttardómara árið 2017 af Donald Trump þáverandi Bandaríkjaforseta. Lagadeildin sem greiddi fyrir ferð hans heitir í höfuðið á Antonin Scalia, forvera Gorsuch í embætti.
Lagadeildin þykir afar íhaldssöm, rétt eins og Gorsuch. Hann er einn þeirra hæstaréttardómara sem kaus með því að snúa dómnum Roe gegn Wade við. Dómurinn tryggði rétt Bandaríkjamanna til þungunarrofs.
Myndasyrpa úr ferð dómarans til Íslands var birt á Twitter á sínum tíma. Þar mátti sjá að kennsla var ekki það eina á dagskrá ferðarinnar, heldur skoðaði hann Hallgrímskirkju, Bláa Lónið og ýmsa aðra staði.
Að sögn New York Times greiddi skólinn 5.250 dollara, eða um 715 þúsund krónur, fyrir flug og gistingu handa dómaranum. Einnig greiddi skólinn fyrir gistingu annarra gestafyrirlesara– vina og samstarfsfólks Gorsuch.
„Sumt af þessu hljómar eins og fyrirframgreitt frí með örlítilli kennslu inni á milli,“ segir Amanda Frost, lögfræðiprófessor við Virginíuháskóla í Bandaríkjunum. Hún segir fyrirkomulagið á ferðunum vera vafasamt.
Ísland er ekki eini áfangastaðurinn sem dómarinn hefur ferðast til með stuðningi skólans. Hann fór til Ítalíu árið 2018 og greiddi skólinn 3.711 dollara, eða um 505 þúsund krónur fyrir þá ferð.
Skólinn hefur einnig greitt ýmsar ferðir annarra hæstaréttardómara.