Kristján Þórður Snæbjarnarson var í dag endurkjörinn formaður Rafiðnaðarsambands Íslands á tuttugasta þingi sambandsins. Þingið hófst á fimmtudaginn og lauk í dag.
Þá var Andri Reyr Haraldsson kjörinn varaformaður, Jakob Tryggvason var kjörinn gjaldkeri og Bára Laxdal Halldórsdóttir ritari. Sambandið greindi frá niðurstöðum kosninga í Facebook-færslu í dag.
Þar kemur fram að Kristján Þórður hafi verið endurkjörinn með lófaklappi.
Kristján tók við embætti forseta ASÍ eftir að Drífa Snædal sagði af sér sem forseti í ágúst í fyrra. Finnbjörn A. Hermannsson var kjörinn forseti ASÍ á þingi sambandsins í apríl og var Kristján kjörinn í embætti þriðja varaforseta.