Tveir á slysadeild eftir eld á Höfðabakka

Samsett mynd af herberginu og hlaupahjólinu.
Samsett mynd af herberginu og hlaupahjólinu. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Tveir voru fluttir á slysadeild til skoðunar með vott af reykeitrun eftir að eldur kom upp í herbergi á Höfðabakka í nótt.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu kviknaði eldurinn út frá hlaupahjóli sem var þar í hleðslu.

Útkall vegna eldsins barst um tvöleytið og var eldurinn slokknaður þegar slökkviliðið kom á vettvang.

Viðbragðsaðilar á vettvangi í nótt.
Viðbragðsaðilar á vettvangi í nótt. mbl.is/Agnar Már

Herbergið þar sem eldurinn kviknaði var óíbúðarhæft eftir eldsvoðann, aðallega vegna reyks.

Fleiri herbergi eru í leigu í húsinu sem um ræðir og var sendur vagn frá Strætó til að hýsa fólkið sem býr þar. Einnig kom starfsfólk Rauða krossins til aðstoðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert