Amast við íbúum sem ekki eru fluttir inn

Grunsamlegar mannaferðir í Laugardalnum í dag voru sagðar eiga sér …
Grunsamlegar mannaferðir í Laugardalnum í dag voru sagðar eiga sér eðlilegar skýringar. mbl.is

Enginn hefur enn flutt inn í smáhýsin í Laugardalnum því ekki er búið að klára þau að innan. Fregnir af viðbúnaði lögreglu við smáhýsin hafa vakið mikla umræðu í hverfishópi Laugarneshverfis á Facebook.

Lögregla var með viðbúnað við smáhýsin í dag vegna grunsamlegra mannaferða sem reyndust eiga sér eðli­leg­ar skýr­ing­ar.

Hús­in eiga að nýt­ast sem bú­setu­úr­ræði á veg­um vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur og eru hugsuð fyr­ir fólk sem hef­ur verið heim­il­is­laust og þarf mikla þjón­ustu.

„Ég veit að það er ekki búið að flytja inn. Það er enn þá verið að vinna í lóðunum. Það er ekki byrjað að búa húsin undir innflutning. Það er talsvert eftir en það er búist við því að íbúar flytji inn í byrjun júní,“ segir Hólm­fríður Helga Sig­urðardótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi á vel­ferðarsviði Reykja­vík­ur­borg­ar, í samtali við mbl.is.

Tímaspursmál hvenær líkfundur verði

Maður í Facebook-hópnum Laugarneshverfi setti þar inn færslu með mynd af aðgerðum lögreglu og sagði vandamál strax hafa skapast sökum íbúa smáhýsanna. Sagði hann að líklegast hefði verið brotist inn í eitt húsið og að „ballið væri rétt komið af stað“.

Virðast smáhýsin enn vera umdeilt umræðuefni, eins og bent var á í frétt mbl.is um viðbúnað lögreglu fyrr í dag. Fleiri en hundrað athugasemdir hafa fylgt færslunni í hverfishópnum.

„Þetta verður varla neitt öðruvísi en við önnur sambærileg úrræði. Spurning hvenær fyrsti líkfundurinn verður þarna, eins og við smáhýsin í Gufunesi, Skógarhlíðinni eða á Grandanum?“ spyr einn.

Það þarf bara að hafa stranga gæslu þarna ef það eru börn að leik þarna í kring,“ segir annar.

Þetta er galin ákvörðun að setja þetta niður þarna með alla krakkana sem eru að æfa hjá Þrótti og eru að labba og hjóla í dalnum,“ segir sá þriðji.

Ekki hættulegra en annað fólk

Aðrir taka upp hanskann fyrir tilvistarrétti smáhýsanna.

Talandi um fordóma gegn þeim sem minna mega sín, er ekki í lagi?“ spyr einn íbúi sem undrar sig á færslunni.

„Hvaða rugl er það að börn megi ekki ganga þarna fram hjá eða sjá þessi hús? Þeir sem munu búa þarna eru ekki hættulegt fólk, í það minnsta ekki hættulegra en annað fólk,“ segir annar.

Það er nú líka nánast daglegt brauð að lögreglan komi á Ölver í Glæsibæ og mun meira ónæði af barnum fyrir íbúana. Ég er ánægð með að þarna fái heimilislausir skjól.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert