Ekki verið rætt um hús í nafni Guðna

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

„Áform um hús sem héti eftir forseta hafa ekki komið til tals,“ segir Sif Gunnarsdóttir, forsetaritari, í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Tilefnið er að reist var hús til heiðurs frú Vigdísi Finnbogadóttur. Það heitir Veröld – hús Vigdísar og var formlega opnað sumardaginn fyrsta árið 2017. Húsið er helgað kennslu, rannsóknum og viðburðum sem tengjast erlendum tungumálum og menningu.

Stórhýsi í Vatnsmýri

Þá hefur borgarráð samþykkt deiliskipulag fyrir hús sem reist verður í Vatnsmýri til heiðurs herra Ólafi Ragnari Grímssyni. Það á að heita Norðurslóð en rætt er um að húsið verði 20 til 30 þúsund fermetrar.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í gær. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert