„Fólk er greinilega að nýta sér þetta“

Frystirinn stendur við Neskirkju við hlið frískápsins.
Frystirinn stendur við Neskirkju við hlið frískápsins. Ljósmynd/Aðsend

Frystiskáp var komið fyrir við hlið frískápsins í Vesturbænum í Reykjavík í dag. Móttökurnar hafa verið góðar að sögn Þórdísar V. Þórhallsdóttur, íbúa í Vesturbænum, en eiginmaður Þórdísar kom frystinum á staðinn ásamt föður hennar. Frystirinn stendur við Neskirkju.

„Það hefur verið mjög vel tekið í þetta, fólk vill gefa með sér. Margir eru með íbúðir í útleigu þannig að maturinn eftir gestina ratar þangað, leikskólar og rekstraraðilar eru að gefa afgangs mat og alltaf hverfur þetta, þannig að fólk er greinilega að nýta þetta,“ segir Þórdís í samtali við mbl.is.

Frískápurinn var settur upp í desember í fyrra ásamt skjalaskápi þar sem fólki gefst kostur á að koma með þurrvörur. Þórdís segir þörfina fyrir frystiskáp ekki hafa verið mikla í upphafi vegna kuldans, en það hafi svo breyst.

„Það var svo kalt úti að fólk gat bara sett frystivörur í skjalaskápinn, en við fengum gefins frysti frá nágrannakonu í dag og nú er hægt að koma með frystivörur, eins og kæli- og þurrvörur.“

Alls konar hefðir og samfélög að skapast

Frískápum landsins fer fjölgandi, en það voru upphaflega vinirnir Kamila Walijewska og Marco Pizzolato sem settu upp fyrsta frískápinn hér á landi, við Bergþórugötu 20.

Allir geta sett mat í frískápana og öllum stendur til boða að nýta sér þá.

„Helsta markmiðið er að minnka matarsóun og skapa samfélag sem hefur í rauninni gerst í kringum alla skápana,“ segir Þórdís.

„Ein kona í Vesturbænum eldar til dæmis súpu þrisvar í viku og fer með í þennan skáp og aðra. Svo er kokkur í fyrirtæki hérna miðsvæðis en býr í Breiðholti og hann fer daglega með afganga þangað. Þannig að það eru að skapast alls konar hefðir og samfélög í kringum skápana.“

Spurð hvort mikil spurn hafi verið eftir frystiskáp í Vesturbænum segist Þórdís hafa fengið þó nokkuð af skilaboðum.

„Ég var búin að fá svolítið af skilaboðum um hvenær kæmi frystir, frá fólki sem vill gefa. Það voru aðallega gefendur að kalla eftir þessu, en þiggjendur láta minna í sér heyra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert