Lögregla var með viðbúnað við nýju smáhýsin á túninu á milli Suðurlandsbrautar og Engjavegar í Reykjavík á fjórða tímanum í dag.
Tilkynnt hafði verið um grunsamlegar mannaferðir en þær reyndust að sögn eiga sér eðlilegar skýringar.
Að minnsta kosti tveir lögreglubílar og eitt lögreglubifhjól voru á staðnum að sögn sjónarvotts.
Staðsetning húsanna hefur verið umdeild og íbúar í Laugardal og nágrenni, svo og íþróttafélögin í hverfinu, hafa lýst andstöðu sinni við staðsetninguna.
Húsin eiga að nýtast sem búsetuúrræði á vegum velferðarsviðs Reykjavíkur og eru hugsuð fyrir fólk sem hefur verið heimilislaust og þarf mikla þjónustu.