Hafði starfað á tveimur öðrum leikskólum

Sólborg í Sandgerði.
Sólborg í Sandgerði. mbl.is/Reynir Sveinsson

Leikskólastarfsmaðurinn sem var sakfelldur fyrir ofbeldi, m.a. fyrir að taka barn hálstaki, hafði áður starfað á tveimur leikskólum, að því er kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness.

Héraðsdómur sakfelldi konu sem starfaði á Hjallastefnu­leik­skól­an­um Sól­borg í Sand­gerði fyr­ir að hafa beitt leik­skóla­börn ofbeldi. Kon­an starfaði á leik­skól­an­um frá því undir lok árs 2020 fram til 8. mars 2021.

Bóas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, segir í samtali við mbl.is að starfsmaður hafi orðið vitni að atviki þar sem konan beitti barn ofbeldi og henni hafi strax verið gert að fara á fund skólastjóra. Hennar vinnuframlag var afþakkað það sem eftir var dagsins og eftir það var henni sagt upp.

Ekkert foreldri tók barn sitt úr leikskólanum

Um 20 börn og fimm starfsmenn eru í kjarnanum þar sem starfsmaðurinn starfaði. Bóas segir að það sé undantekning að starfsmenn séu skildir eftir aleinir með börnum.

Hann segir að ekkert foreldri hafi tekið barnið sitt úr leikskólanum í kjölfar uppsagnar starfsmannsins. Foreldrar hafi verið upplýstir og kallaðir til fundar. Ekki hafi þó verið hægt að upplýsa alla foreldra um einstök málsatvik.

„Barnavernd var kölluð samstundis á staðinn og þá var ákveðið að hringja í lögreglu og gera þetta að opinberri rannsókn,“ segir Bóas. „Þetta er auðvitað umhverfi þar sem slíkt á ekki að gerast.“

Hann bætir við: „Þetta er umhverfi þar sem við leggjum upp með kærleika og mannvirðingu. Það er þyngra en tárum taki að þetta hafi gerst. Við erum þakklát fyrir að eiga góð samskipti við foreldra og að það eru barnavernd og önnur yfirvöld sem við getum leitað til þegar það koma upp þung mál.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert