Hlauparinn kona á sjötugsaldri

Tíu félagar í björgunarfélaginu gengu á slysstað með sérstakan búnað …
Tíu félagar í björgunarfélaginu gengu á slysstað með sérstakan búnað og börur á hjóli. Ljósmynd/Landsbjörg

Hlauparinn sem var sóttur af Björgunarfélagi Vestmannaeyja í ut­an­vega­hlaup­inu The Puff­in Run reyndist vera 69 ára gömul kona.

Félagið var kallað út í gær vegna konu sem hafði slasast í hlaupinu. Að sögn Magnúsar Bragasonar, skipuleggjanda hlaupsins, fékk konan krampa. Hann segir tímasetningu meiðslanna hafa verið afar slæma þar sem konan var „alveg að koma í mark“.

Magnús segir að starfsmaður hlaupsins hafi séð hana og samstundis ákveðið að hringja í viðbragsaðila. Slíkt sé alltaf gert ef grunur er um að einhver hafi slasast. Hann segist aðspurður ekki hafa fengið neinar frekari upplýsingar um líðan konunnar.

Tíu fé­lag­ar í Björg­un­ar­fé­lagi Vest­manna­eyja gengu á slysstað með sér­stak­an búnað og bör­ur á hjóli.

Að sögn Magnúsar heppnaðist hlaupið vel. Þetta var í sjötta sinn sem það var haldið og um 1.100 manns tóku þátt í ár, sem er metþátttaka. The Puffin Run er 20 km hlaup sem fer ávallt fram í Vestmannaeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert