Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa slegið mann í höfuðið fyrir utan skemmtistað með þeim afleiðingum að hann féll í götuna og hlaut alvarlega og varanlega höfuðáverka.
Maðurinn hlaut blæðingu í og við heila og höfuðkúpubrot. Afleiðingar áverkanna fela í sér hugræna skerðingu, hafa áhrif á vitræna getu, skerðingu á athygli, minni og málfærni, veikleika í stýrifærni og erfiðleika með einbeitingu.
Árásarmaðurinn kvaðst þekkja brotaþola, en þeir hefðu verið kunningjar á djamminu í um fimmtán ár. Vitni kváðu brotaþola hafa verið utan í og að angra árásarmanninn allt kvöldið, auk þess sem hann hefði verið að áreita fólk á skemmtistaðnum.
Eftir lokun hefðu fjölmargir gestir staðarins verið þar fyrir utan, þar á meðal brotaþoli, sem hafi ýtt við mörgum. Árásarmaðurinn bað hann um að hætta því og í kjölfarið reis ágreiningur þeirra á milli sem endaði með því að hann sló brotaþola með krepptum hnefa undir hökuna með þeim afleiðingum að hann féll með höfuðið í götuna.
Héraðsdómi þótti refsing réttilega ákveðin skilorðsbundið fangelsi í sex mánuði, en skýlaus játning árásarmannsins var metin honum til hagsbóta auk hreins sakavottorðs. Var honum gert að greiða manninum tvær milljónir króna í miskabætur.
Að mati dómsins mætti rekja afleiðingar hnefahöggsins til óhappatilviks þar sem þær hefðu verið ófyrirséðar og mun alvarlegri en atlagan hefði gefið tilefni til.