Leigubílstjórinn Maríus Silva Helgason hjá Hreyfli hefur nóg að gera. „Ég er að mestu upppantaður í allt sumar,“ segir hann. Þakkar það ekki síst sérstakri þjónustu. „Ég býð farþegum upp á vatn, kaffi og súkkulaði, þeim að kostnaðarlausu, meðan á akstrinum stendur og það hefur mælst vel fyrir.“
Þjónustulundin er Maríusi í blóð borin. Hann er ættaður frá Húsavík og segir að þegar Mærudagar hafi byrjað hafi orðið mæra verið til umræðu í útvarpinu. „Það var rekið til Maríusar Benediktssonar, langafa míns, en hann og langamma bjuggu til karamellur og súkkulaði og önnur sætindi, settu í poka og mærðu börnin með því. Ég tryggði mér nafnið, er með það á bílnum, og súkkulaðið, sem ég býð upp á, er líka merkt því.“
Maríus var lengi til sjós fyrir norðan og starfaði ýmist sem kokkur eða háseti. Matseldin kveikti í honum og hann flutti suður 1991 til þess að læra að verða matreiðslumaður.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu sem kom út á föstudag.