„Hér í Lystigarðinum leynist líf,“ segir Bryndís Fjóla Pétursdóttir á Akureyri. Framtak hennar, sem hér er til frásagnar, er nýsköpunarverkefnið Huldustígur sem hún hefur unnið að í vetur.
Hún teiknaði yfirlitskort af Lystigarðinum á Akureyri, sem sýnir hvar huldufólk og álfar búa í garðinum.
Uppsetningu kortsins í Lystigarðinum ætlar hún að fylgja eftir með því að bjóða upp á skipulagðar gönguferðir með leiðsögn um skrúðgarðinn í höfuðstað Norðurlands.
Í Lystigarðinum er afar fjölbreytt flóra, bæði blóma og trjáa, sem gerir staðinn eftirtektarverðan. Hitt vita færri að þarna eru heimkynni huldufólks og þeim ætlar Bryndís að segja frá í skipulögðum ferðum nú í sumar. Nánari tímasetningar þeirra verða kynntar á vefslóðinni huldustigur.is. Í júní verður til að mynda hægt að fá gönguferðir með leiðsögn með á fyrirframauglýstum tímum eða senda óskir um einkaferðir með fjölskyldur eða vinahópa.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem út kom á föstudag.