Lilja og Burić funduðu í Strassborg

Lilja og Burić.
Lilja og Burić. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra fundaði með Mariju Pejčinović Burić, framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, í Strassborg á föstudag.

Ísland fer með formennsku í Evrópuráðinu og var svokallaður Íslandsdagur haldinn í Strassborg í aðdraganda leiðtogafundarins í Reykjavík.

Á fundinum ræddu þær um undirbúning leiðtogafundarins og menningardagskrá Íslands. Ráðherra þakkaði Burić fyrir stuðning hennar við formennsku Íslands. Á umrótatímum skipti máli að sýna stuðning og samstöðu við Úkraínu sem væri jafnframt ein af megináherslum í formennskutíð Íslands.

Lilja sagði frá staðfestu íslenskra stjórnvalda að viðhalda íslenskunni, árangri máltækniáætlunar og samstarfi við Open AI, að því er segir í tilkynningu.

„Eitt af umfjöllunarefnum leiðtogafundarins verður tjáningarfrelsi og öryggi blaðamanna og vorum við sammála um mikilvægi fjölmiðla fyrir lýðræðisþróun,“ segir Lilja í tilkynningunni.

Evrópuráðið samanstendur af 46 aðildarríkjum og hefur staðið að gerð um 200 alþjóðasamninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert