Vopnað rán var framið í Reykjavík þegar einstaklingur ógnaði vegfaranda með hníf og krafði hann um fjármuni. Málið er í rannsókn.
Tilkynnt var um eignaspjöll utan á íbúðarhúsnæði í Vesturbænum. Búið var að skvetta á það rauðum matarlit, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gærkvöldi til klukkan 5 í morgun.
Ökumanni bifreiðar í Reykjavík voru gefin merki um að stöðva bifreið sína sem hann sinnti ekki og ók hann gegn rauðu umferðarljósi. Hann stöðvaði síðan bifreiðina og reyndi að komast undan lögreglu á hlaupum en náðist stuttu síðar. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og/eða annarra vímuefna og gistir fangageymslur þar til hægt er að ræða við hann.
Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur.
Ökumaður bifreiðar var stöðvaður fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Hann ók á 113 km hraða þar sem hámarkshraði er 50 km klst. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.
Í sama umdæmi var tilkynnt um umferðaróhapp eftir að ekið var á nokkrar bifreiðar. Sá sem olli tjóninu er grunaður um ölvun við akstur.
Í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti var nokkrum verkefnum sinnt þar sem kvartað var undan samkvæmishávaða í íbúðarhúsum.
Afskipti voru höfð af ökumanni sem ók á móti umferð í Breiðholti. Hann reyndist vera 16 ára og verður málið unnið í samráði við foreldra og barnaverndaryfirvöld.