Yfir sautján gráða hiti í Þórsmörk

Básar í Goðalandi.
Básar í Goðalandi. mbl.is/Árni Sæberg

Hiti virðist hafa farið yfir sautján gráður í Þórsmörk í dag ef marka má veðurathugun Veðurstofu Íslands.

Á vef Veðurstofunnar kemur fram að mesti hiti á landinu í dag hafi verið í Þórsmörk, nánar tiltekið í Básum á Goðalandi þar sem hiti fór upp í 17,1 gráðu.

Þar á eftir fylgir Rauðinúpur á Melrakkasléttu, þar sem hiti mældist 16,7 gráður.

16,6 gráða hiti mældist á Húsavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert