Atvinnumaður í knattspyrnu söðlar um

Jørgen Tengesdal ásamt Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi, …
Jørgen Tengesdal ásamt Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi, og Elísabetu Helgadóttur, fulltrúa Vest.is. Ljósmynd/Norska sendiráðið/Silje Beite Løken

„Við erum að endurskapa sígilda norska hönnun frá sjötta og sjöunda áratugnum og erum búnir að ryksuga upp leyfi fyrir framleiðslunni hjá þeim sem eiga einkaleyfi eða, í mörgum tilfellum hjá afkomendum þeirra,“ segir Jørgen Tengesdal í samtali við mbl.is.

Tengesdal er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu með Viking í Stavanger og stofnandi norska húsgagnaframleiðandans Eikund en hann var staddur á Íslandi fyrir helgi að kynna framleiðslu sína í samstarfi við HönnunarMars og norska sendiráðið á Íslandi.

Undruðust stöðu norskrar hönnunar

„Sagan á bak við þetta hófst árið 2015,“ segir Tengesdal frá en þá kviknaði sá draumur þeirra Morten Hippe og Frode Tingbø, sem stofnuðu Eikund með honum, að hefja framleiðslu sígildra norskra húsgagna frá þeim tíma sem norsk textílhönnun var á hátindi frægðar sinnar.

Tengesdal ásamt Hafsteini Júlíussyni hönnuði.
Tengesdal ásamt Hafsteini Júlíussyni hönnuði. Ljósmynd/Norska sendiráðið/Silje Beite Løken

Segir hann að þeir félagar hafi undrast hve höllum fæti norsk húsgagnahönnun stæði samanborið við húsgagnaiðnað Dana sem þekktur sé um allan heim og því ákveðið að hefja norska húsgagnasmíði til vegs og virðingar á nýjan leik. Nú er svo komið að þeir hafa tryggt sér leyfi til framleiðslu þrettán húsgagna frá „norsku gullöldinni“ og er Tengesdal á ferðalagi víða um Evrópu til að vekja athygli húsgagnakaupmanna og annarra áhugasamra á endurfæddum norskum húsgögnum.

Sígildir bar- og stofustólar eru þar á meðal, borð ýmiss konar og hinn kunni ísbjörn sem Arne Tjomsland hannaði á sínum tíma.

Vel tekið í erindið

Aðspurður kveður hann það hafa kostað töluverða vinnu að útvega leyfin til að fá að hefja framleiðslu á húsgögnum sem litu dagsins ljós í Noregi fyrir hátt í öld. „Við þurftum að finna þá sem erfðu eða með öðrum hætti öðluðust einkaleyfin og það gat verið snúið,“ játar knattspyrnumaðurinn fyrrverandi.

Þeim þremenningunum bak við Eikund hafi þó iðulega verið vel tekið og leyfishöfum nútímans gjarnan þótt til þess koma að Tengesdal og félagar hafi sýnt því áhuga að hefja framleiðslu þessarar gömlu hönnunar á ný. Framleiðsluna hófu þeir í Hellvik sem er í Egersund á vesturströnd Noregs en nú er svo komið að þeir hafa úthýst henni til Danmerkur, þar sem framleiðandinn Kvist er þeim samningsbundinn, og Lettlands.

Norsku gestirnir í sendiráðinu á föstudaginn áður en þeir héldu …
Norsku gestirnir í sendiráðinu á föstudaginn áður en þeir héldu erindi á viðburði sem sendiráðið og HönnunarMars blésu til í sameiningu. Ljósmynd/Norska sendiráðið/Silje Beite Løken

Eins og fleiri atvinnurekendur fóru aðstandendur Eikund illa út úr heimsfaraldrinum en eru nú að rétta úr kútnum á ný þótt stríðið í Úkraínu hafi ekki bætt úr skák, játar Tengesdal. Hráefniskostnaður um allan heim hefur rokið upp úr öllu valdi auk þess sem afhendingartími efnis sé oftar en ekki á reiki.

„Svo nú er bara að bretta upp ermarnar og þessi heimsókn er liður í því, í raun bara óformlegt spjall og kynning en okkur leikur líka hugur á að vita hvernig Íslendingum fellur gömul norsk húsgagnahönnun,“ segir Jørgen Tengesdal að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert